9.5.2025
Afmæli LSS - mánudaginn 12.maí 2025
Í tilefni af 50 ára afmæli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna þann 12. maí 2023 var ákveðið að heiðra fyrrum stjórnarmenn félagsins. Árið 2023 voru fyrrum formenn heiðraðir og í fyrra voru fyrrum varaformenn heiðraðir.
Nú er komið að öðrum fyrrum stjórnarmönnum félagsins að fá silfurmerki félagsins á afmælisfagnaði félagsins 12. maí n.k.
Afmælisfagnaðurinn verður haldinn í sal 3 að Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, Reykjavík, mánudaginn 12. maí n.k. Opið hús verður milli 15:00 og 17:00. Dagskrá hefst um kl. 15:30.
Boðið verður upp á léttar veitingar.