Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

13.6.2025

Staða launafólks á Íslandi 2025

Staða launafólks á Íslandi 2025

 

Kæru félagar

 

Nú þurfum á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í könnun um stöðu ykkar. Það tekur stuttan tímaog öll sem vilja komast í pott og geta unnið 40.000 króna gjafakort.

Könnunin er á vegum Vörðu –Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins og er nú lögð fyrir fimmta árið í röð.Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér ílagi varðandi fjárhagsstöðu og heilsu. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkur viðað greina stöðu launafólks á Íslandi og berjast fyrir betri lífsskilyrðum.

Það tekur aðeins um 15 mínútur að svarakönnuninni og ekki er hægt að rekja svör til einstaklinga. Spurt er umfjárhagsstöðu, líðan, heilsufar og stöðu á húsnæðismarkaði.

Könnunina finnið þið hér: Staða launafólks á Íslandi 2025 Survey

Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og úrvinnslu á niðurstöðum.

  • Könnunin verður opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða tölvu.
  • Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
  • Þrír þátttakendur vinna 40.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna.
  • Könnunin opnar fimmtudaginn 12. júní og verður lokað föstudaginn 27. júní.
  • Könnunin er ópersónurekjanleg. Happdrætti sem þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í er á öðrum hlekk og ekki hægt að rekja saman svör í könnuninni við þátttöku í happdrættinu.

Við hvetjum allt félagsfólk til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.

Lestu líka

7.8.2025

Skrifstofa LSS er lokuð frá og með 8.júlí - 7.ágúst vegna sumarleyfa starfsmanna.

10.7.2025

Ráðstefnur og sýningar tengdar slökkvi- og björgunarstörfum erlendis

30.6.2025

Á vakt fyrir Ísland - fréttablað 2025