27.8.2026
Vegna frétta dagsins - kjarasamningar okkar enn í gildi
Kæru félagar,
Vegna frétta um verðbólgu í dag hafa borist fyrirspurnir um stöðu kjarasamninga á opinberum vinnumarkaði og við fengið fréttir af því að þó nokkur umræða er á vinnustöðum félagsfólks aðildarfélaga um hvaða þýðingu þetta hefur fyrir þau. Af því tilefni viljum við senda ykkur eftirfarandi– þið nýtið þetta að vild. Besta leiðin til að upplýsingarnar skili sér til félagsfólks er eflaust í gegnum tölvupóst.
Kjarasamningar eru enn í gildi
Kjarasamningar aðildarfélaga BSRB eru enn í gildi. Samningar á bæði opinberum og almennum vinnumarkaði gilda til ársins 2028.
Hvað gerist núna?
Á almennum vinnumarkaði er ákveðið skilyrði, forsendur, í kjarasamningum sem nú hefur ekki staðist. Verðbólgan mælist yfir 4,7% og því hefst nú samtal milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins (SA) um hvernig eigi að bregðast við stöðunni.
Ef ekki næst samkomulag í því samtali geta stéttarfélög á almennum vinnumarkaði og SA sagt kjarasamningunum upp fyrir 8. október næstkomandi.
Hvað þýðir þetta fyrir opinbera vinnumarkaðinn?
Kjarasamningar okkar á opinberum vinnumarkaði eru með öðruvísi ákvæði um þessar aðstæður.
Ef samið verður um launa- eða kjarabreytingar á almennum vinnumarkaði eigum við að taka upp viðræður um hvernig þær breytingar eiga að koma inn í okkar samninga. Markmiðið er að tryggja sambærilegar kjarabætur og samið er um á almennum vinnumarkaði.
Við teljum mikilvægt að bregðast sérstaklega við stöðu þeirra sem verðbólga og háir vextir bitna hvað harðast á. Við erum nú í samtali við stjórnvöld og aðra aðila vinnumarkaðarins um það.
Hvað ef kjarasamningum verður sagt upp?
Ef kjarasamningum á almennum vinnumarkaði verður sagt upp höfum við á opinberum vinnumarkaði heimild til að segja okkar kjarasamningum upp. Það þýðir að samningar okkar yrðu ekki sjálfkrafa lausir heldur er það ákvörðun aðildarfélaganna hvort nýta eigi þá heimild.
Það er því engin breyting á okkar kjarasamningum í dag. Þeir eru í gildi og áfram verður unnið að því að verja kjör félagsfólks og bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir
Formaður BSRB