27.9.2026
Björgun 26 - 16.-18.október nk.
Björgun26 er alþjóðleg ráðstefna um leit, björgun og störf viðbragðsaðila sem haldin verður í Hörpu dagana 16.-18. október. Á ráðstefnunni koma saman sérfræðingar og viðbragðsaðilar til að miðla þekkingu, reynslu og nýjungum á sviði björgunarstarfa.
Á dagskrá eru yfir 60 fyrirlestrar, vinnustofur og fjölbreytt vörusýning þar sem kynntur verður nýjasti búnaður og tækni.
Ráðstefnan er kjörinn vettvangur fyrir slökkviliðsfólk og aðra viðbragðsaðila til að efla þekkingu sína og tengjast kollegum, bæði hér heima og erlendis.
Nánari upplýsingar og skráning á rescue.is
Hægt er að sækja um styrk í Starfsmenntunarsjóði LSS fyrir ráðstefnugjaldinu.
