Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

25.3.2026

Afnám áminningarskyldu

Kæru félagsmenn

Alþingi hefur nú til meðferðar frumvarp um breytingar á lögum sem kveður meðal annars á um afnám áminningarskyldu stjórnvalda áður en kemur til uppsagnar opinberra starfsmanna. Þetta felur í sér aðför að réttindum opinberra starfsmanna og skerðingu á þeim sem getur reynst afdrifarík. Samtök launafólks á opinberum markaði hafa þegar látið í sér heyra með auglýsingum í fjölmiðlum og mótmælt þessum áformum harðlega. Á heimasíðunni https://godaminning.is/ er að finna ýmsar upplýsingar og kynningarefni frá BSRB, Kennarasambandi Íslands og félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

LSS hvetur félagsfólk sitt til að kynna sér málið og hjálpa okkur að breiða út vitund um það, enda er um mikilvægt réttindamál að ræða þegar kemur að okkar störfum.

 

Sigurjón Bergsson

Sitjandi formaður LSS

Lestu líka

15.6.2026

Skrifstofa LSS verður lokuð þriðjudaginn 16.júní vegna sumarleyfa starfsmanna

10.6.2026

Trúnaðarmannanámskeið streyma á vefinn

21.5.2026

Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu