Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

18.5.2026

Ný námsferð til Holmatro í klippibúnaði - september 2026

Líkt og á síðasta ári ætlar fagdeild slökkviliðsmanna ásamt Eldvarnarmiðstöðinni að standa fyrir námsferð dagana 22. – 23. september 2026 til Holmatro í Hollandi. Boðið verður upp á  tveggja daga námskeið í björgun á fastklemmdum sjúklingum úr bifreiðum og umgengni við klippibúnað. Takmarkað sætaframboð er í boði en gert er ráð fyrir að 8 manna hópur fari út.

 

Félagsmenn LSS  sækja um þátttöku á netfangið lsos@lsos.is fyrir 22. júní 2026 en dregið verður úr umsóknum fyrir 25. júní 2026 og þátttakendum tilkynnt hvort þeir fái pláss á námskeiðinu. Þeir aðilar sem dregnir verða út þurfa að kaupa flug og senda staðfestingu á LSS fyrir 1.ágúst 2026 til að tryggja sér sæti á námskeiðinu.

 

·       Ferðatilhögun er  flug til Schipol 21. september 2026

·       Holmatro sér um að bóka hótel en þátttakendur sjá sjálfir um að greiða fyrir hótelið,

·       Holmatro sér um að koma hópnum á hótel

·       2 dagar í námskeið  22-23. september

·       Holmatro kemur hópnum aftur á Schipol 24. september


Þátttakendur geta sótt um styrk úr Starfsmenntunarsjóð fyrir flugi og hóteli en námskeiðsgjaldið sjálft er í boði Holmatro og Eldvarnarmiðstöðinnar.

Nánari upplýsingar veitir formaður fagdeildar slökkviliðsmanna, Jón Kristinn Valsson, netfang: jonk@lsos.is

 

Lestu líka

18.5.2026

Ný námsferð til Holmatro í klippibúnaði - september 2026

11.5.2026

Afmæli LSS - opið hús 12.maí

29.4.2026

1.maí / Reykjavík / Kröfuganga og útifundur