10.6.2026
Trúnaðarmannanámskeið streyma á vefinn
Haustið í fullum undirbúningi
Fjöldi námskeiða komin á vefinn
Kæru félagar. Þrátt fyrir að sumarfríin séu handan við hornið er allt á fullu á bakvið tjöldin hjá Félagsmálaskólanum en við höfum nú þegar birt á fjórða tug fjar- og vefnámskeiða á vefnum okkar. Fyrstu námskeiðin hefjast í september og er af nógu að taka.
Við munum bjóða upp á námskeið á íslensku, ensku og pólsku og munum bæta fleiri námskeiðum á vefinn um miðjan ágúst svo það er um að gera að fylgjast vel með.
Þessi póstur er sendur á póstlista skólans og við hvetjum ykkur til að áframsenda hann til trúnaðarmanna innan ykkar raða.
Trúnaðarmenn eru einn af hornsteinum hvers félags og því mikilvægt að þeir hafa staðgóða þekkingu á því umhverfi sem þeir starfa í.
Við hlökkum til að sjá ykkur á námskeiðum næstu annar. Gleðilegt sumar!
---
Trúnaðarmenn þurfa vilyrði frá sínu félagi ef það á að greiða námskeiðsgjöld.
Aðrir þátttakendur geta átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.