2.8.2025
Landsmót LSS í golfi
Landsmót LSS í golfi 2025 verður haldið á Hamarsvelli í Borgarnesi föstudaginn 5. september. „Shotgun“ ræsing kl. 08:00. Keppt verður í höggleik án forgjafar og punktakeppni bæði í einstaklingskeppni og sveitakeppni.
Skráning fer fram hér til 1. september
Rétt til þátttöku eiga þeir félagsmenn LSS sem eru starfandi og þeir sem komnir eru á eftirlaun. Hægt er að skrá maka og gesti en þar sem aðeins eru 40 sæti í boði kemur ekki í ljós fyrr en eftir 1. september hvort makar og gestir fái að taka þátt.
Verðlaunaafhending fer svo fram í Borgarnesi strax eftir mótið.