11.6.2025
Kjarasamningur stjórnenda
Seinni partinn í gær undirritaði LSS samning við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir stjórnendur slökkviliða. Samningurinn er á sömu nótum og aðrir samningar sem gerðir hafa verið. Stefnt er á að kynna kjarasamninginn á teams mánudaginn 16. júní en atkvæðagreiðsla verður rafræn frá 16. júní til kl. 11 fimmtudaginn 19. júní.
Undirritaður kjarasamningur verður settur inn á mínar síður á heimasíðu LSS þar sem hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkum og skoða samninginn.