25.4.2025
Boston Marathon Bombing 2013 - Innsýn stjórnanda í lögreglunni í Boston
LSS hefur fengið nokkur sæti á fyrirlestur á vegum Íslandsdeild International Police Association (IPA) en fyrirlesturinn ber heitið Leading Before, During and after the Crisis.
Viðburðurinn verður í Borgarleikhúsinu föstudaginn 9. maí frá kl. 10-16
Þar sem um takmarkað sætaframboð er að ræða þurfa þau sem hafa áhuga á að mæta að senda póst á bjarnii@lsos.is Vinsamlegast ekki skrá ykkur nema þið ætlið 100% að mæta.
Chief Daniel Linskey fer með okkur í gegnum hvernig lögreglan í Boston tókst á við hryðjuverkaárás á Boston maraþonið árið 2013. Chief Linskey mun fjalla um "leading before, during and after the crisis" ásamt því að gefa innsýn í hans feril í lögreglunni í Boston.