Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

3.11.2026

Þrek fyrir Ljósið

Þrek í þágu Ljóssins

Laugardaginn 7. nóvember ætlar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Bergur Vilhjálmsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá okkur að efna til þrekdags til styrktar Ljósinu.

Í inntökuferli slökkviliðsmanna þarf að standast þrekpróf sem reynir á allt: þol, styrk, einbeitingu og seiglu. Þrekprófið er tekið í sérstakri þrekbraut og þau sem fara hana einu sinni eru sátt með það, en Bergur ætlar að endurtaka hana í 12 tíma!

Málefni Ljóssins stendur okkur í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins nærri þar sem krabbamein er eitt af áhættuþáttum þess að starfa sem slökkviliðsmaður.

Bergur ætlar að byrja kl.7.20 og markmiðið er að safna sem mestu fyrir Ljósið en persónulega stefnir hann á að fara brautina a.m.k. 40 sinnum!

Þrekbrautin verður sett upp á stöðinni okkar í Mosfellsbæ og verður hún opin fyrir almenning milli kl. 11:00 og 14:00 og ætlum við að gefa fólki tækifæri til að prófa brautina. Á þeim tíma verður gestum boðið upp á súpu gegn vægu endurgjaldi og mun andvirðið ganga óskert til Ljóssins.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest á stöðinni í Mosfellsbæ, til að hvetja Berg áfram og ekki síst til að leggja þessu mikilvæga málefni lið.

Nánari upplýsingar veitir Ásdís Gíslason, upplýsingafulltrúi s .833-8313

Lestu líka

3.11.2026

Þrek fyrir Ljósið

29.10.2026

Genfarskólinn 2027 - opið fyrir umsóknir

21.10.2026

Heilbrigðisþing um geðheilsu barna og ungmenna