Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

10.2.2026

112 dagurinn

Neyðarlínan heldur upp á 1-1-2 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 1-1-2. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.

Í ár minnumst við þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996.

Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.

Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsælegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2.

· Hvar er atburðurinn?

· Hver ert þú?

· Hvað gerðist?

· Hvenær gerðist atburðurinn?

Dagur íslenska táknmálsins er einnig haldinn hátíðlegur þann 11. febrúar ár hvert og verður dagskráin túlkuð á táknmáli.

Dagskrá 112 dagsins

Hvenær: Miðvikudaginn 11. febrúar 2025, kl. 15-18. Formleg dagskrá hefst kl. 17:00

Hvar: Smáralindin

Kl. 15.00-18.00 Neyðarverðir frá Neyðarlínunni verða á staðnum ásamt fulltrúum frá Rauði krossinum og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Þá verður viðvera á staðnum frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, Samfélagslögreglunni, Lífsbrú og fleirum.

Kl. 16.00-17.00 Björnis brunabangsi kíkir við

Kl. 17.00 - 17:30 Formleg dagskrá

  • Ávarp dómsmálaráðherra
  • Framkvæmdarstjóri Neyðarlínu, Jón Svanberg Hjartarson veitir viðurkenningar
  • Verðlaun veitt í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

    Sjá nánari upplýsingar um viðburðinn á samfélagsmiðlum hér


Lestu líka

10.2.2026

112 dagurinn

3.2.2026

Breyting á stjórn LSS

30.1.2026

Fræðslufundur með Dr. Ricardo Weewer