21.10.2026
Heilbrigðisþing um geðheilsu barna og ungmenna
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til árlegs heilbrigðisþings 26. nóvember næstkomandi. Þingið verður að þessu sinni helgað áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn. Þingið verður haldið á hótel Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, einnig verður unnt að fylgjast með í beinu streymi frá þinginu.
Þingið hefst með skráningu og léttri hressingu kl. 8.00. Formleg dagskrá hefst kl. 8.30 og þinglok verða um kl. 16.00.
Upplýsingar um dagskrá þingsins og fyrirlesara má sjá á vef ráðuneytisins.