Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

14.2.2026

Tilkynning frá uppstillingarnefnd LSS vegna 21. aðalþings LSS 2026 

Tilkynning frá uppstillingarnefnd LSS vegna 21. aðalþings LSS 2026 
  
Á 21. aðalþingi LSS, 10. – 12. apríl 2026, sem haldið verður á Centrum Plaza hótel, Aðalstræti 4-6, 101 Reykjavík, verður kosið skv. lögum LSS og samþykktum fagdeilda, er vísað í neðangreind hlutverk hér fyrir neðan þar sem tiltekin eru þau störf sem kosið verður um. Það á jafnframt við þá sem vilja bjóða sig fram sem formenn fagdeilda. 
  
Uppstillingarnefnd hvetur félagsmenn sem hafa áhuga félags- og kjaramálum LSS að skoða þau embætti sem eru laus, að gefa kost á sér til starfa og hvetja aðra áhugasama til þess. Lýsingar á hlutverkum stjórnarmanna má finna í fylgiskjali 1 og á heimasíðu LSS má finna útgefin erindisbréf fyrir öll embætti.  
 
Eftirtalin embætti eru laus til kjörs: 
Stjórn til tveggja ára: 
Formaður
Varaformaður 
Meðstjórnandi 
Meðstjórnandi 
Meðstjórnandi
Formaður fagdeildar slökkviliðsmanna 
Formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna 
Varamaður 1  
Varamaður 2 
 
Skoðunarmenn reikninga:  
Tveir félagslegir endurskoðendur skulu kosnir á þingi LSS til tveggja ára.  
 
Kjörstjórn  
Skv. 29. grein laga LSS ber að kjósa þrjá í kjörstjórn og tvo varamenn til tveggja ára.  
 
Fagdeild sjúkraflutningamanna  
Kosning að hámarki 6 aðila á aðalfundi fagdeildar sjúkraflutningamanna til tveggja ára, þar af tveir hlutastarfandi. Formaður er sérstaklega kosinn á aðalfundi LSS. Fjórir úr fagdeild sjúkraflutningamanna hafa lýst því yfir að þeir munu ekki bjóða sig fram aftur. Heimilt er að bjóða sig fram í fagdeildir fram að aðalfundi fagdeilda en við hvetjum frambjóðendur að gera það tímanlega. 
 
Fagdeild slökkviliðsmanna  
Kosning að lágmarki 2 aðilar og að hámarki 6 aðila á aðalfundi fagdeildar slökkviliðsmanna, skv. hefð, til tveggja ára. Formaður er sérstaklega kosinn á aðalfundi LSS. Þrír úr fagdeild slökkviliðsmanna hafa lýst því yfir að þeir munu ekki bjóða sig fram aftur. Heimilt er að bjóða sig fram í fagdeildir fram að aðalfundi fagdeilda en við hvetjum frambjóðendur að gera það tímanlega.  
 
Fagdeild stjórnenda  
Kosning 3ja aðila á aðalfundi fagdeildar stjórnenda til tveggja ára. Formaður er sérstaklega kosinn á aðalfundi LSS.  
 
Fagdeild neyðarvarða 
Kosning 3ja aðila á aðalfundi fagdeildar stjórnenda til tveggja ára.  
 
Framboðstilkynningar og tillögur um einstaklinga í embætti á vegum LSS þ.m.t stjórn fagdeilda skulu berast til uppstillingarnefndar skriflega eða í tölvupósti á netfangið gudmundura@lsos.is. Skv. 24.6 greinar laga LSS þá þurfa framboð í embætti til stjórnar LSS að berast uppstillingarnefnd hið fyrsta og eigi síðar en 35 dögum fyrir þing þ.e. 6 mars kl. 12:00. Uppstillingarnefnd sendir út framboðslista eigi síðar en fjórum dögum eftir að framboðsfresti lýkur.  
 
Fyrir þá sem huga að bjóða sig fram má finna í fylgiskjali 2 hvernig staðið verður að framboðinu af hálfu LSS og skilgreind hvaða þjónusta er í boði. 
  
Sérstök athygli er vakin á því að ekki er hægt að skila framboðum á þinginu sjálfu í embætti stjórnarmanna.  
 
Nánari upplýsingar veitir uppstillingarnefnd:  
 
Uppstillingarnefnd skipa:  
Bryndís Elva Bjarnadóttir, bryndiselvab@gmail.com s: 659 6758 
Sverrir Árnason, sverrira@shs.is s: 8683695 
Selma Friðriksdóttir, selma.fridriksdottir@hsu.is s: 845 5034 
 
Varamenn  
Kristján Karlsson, kristjankarls@gmail.com 
Jónas Árnason, jonasa@shs.is  
 
Fylgiskjal 1 – Starfslýsingar stjórnarmanna (Viðmið)  
 
Starfslýsingar stjórnarmanna úr starfsreglum stjórnar, samþykkt 29. október 2020 
  
3.1. Starfssvið ráða og stjórnarmanna LSS:  
 
3.1.1. Formaður LSS  
 
Er formaður stjórnar og málsvari allra félagsmanna í landinu. Formaður deilir verkefnum með stjórninni að því leyti sem það er ekki gert í lögum þessum. Hann stjórnar fundum stjórnar LSS. Formaður er jafnframt formaður fulltrúaráðs og kjararáðs. Formaður ber ábyrgð á stefnumótun LSS, sér um samskipti við fulltrúaráð og kjararáð er varðar málefni félagsins. Formaður fær greidd laun í hlutastarfi og er því virkur stuðningur við störf starfsfólks skrifstofu við dagleg störf og eru laun hans ákvörðuð af stjórn LSS hverju sinni. Formaður situr jafnframt í Lífeyrisnefnd.  
 
3.1.2. Varaformaður LSS  
Varaformaður gegnir störfum formanns í fjarveru hans. Hann ber m.a. ábyrgð á samskiptum stjórnar við félagsmenn, hann ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd aðalþings og er stuðningur í kjaramálum við formann og framkvæmdastjóra. Hann ber ábyrgð á að starfsáætlanir séu gerðar og þeim sé fylgt eftir. Er fulltrúi stjórnar í nefnd um skyndihjálparmann ársins.  
 
3.1.3. Gjaldkeri LSS Gjaldkeri starfar í umboði stjórnar er tengiliður stjórnar við framkvæmdastjóra um daglegan rekstur LSS. Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum félagsins, bæði tekjuöflun og ráðstöfun teknanna. Gjaldkeri ber ábyrgð á eftirliti með bókhaldi félagins og veitir framkvæmdastjóra, stjórn, nefndum og ráðum aðhald í fjármálum. Hann ber ábyrgð á endurskoðun félagsins. Hann ber ábyrgð á því að upplýsa stjórn reglulega um stöðu fjármála og fylgja eftir fjárhagsáætlun félagsins. Hann ber ábyrgð á koma með tillögur að nýjum fjáröflunarverkefnum fyrir félagið og framþróun þeirra. Hann er tengiliður við orlofsnefnd.  
 
3.1.4. Ritari LSS  
Ritari ber ábyrgð upplýsinga- og kynningarmálum LSS. Hann ber ábyrgð á ásýnd félagsins í ræðu og riti. Hann kemur með tillögur til stjórnar að nýjum samfélags- og þjónustuverkefnum sem eflir ímynd félagsins. Hann ber ábyrgð á uppfærslu og endurskoðun á lögum og reglugerðum LSS og kemur með tillögur til stjórnar þar um. Hann ber ábyrgð á ritun fundargerða stjórnar, fréttatilkynningum, ályktunum og öðru efni sem fer til félagsmanna eða opinberra aðila. Hann tryggir öflugt upplýsingaflæði til stjórnar, nefnda, fulltrúaráðs, kjararáðs og annarra félagsmanna með þeim verkfærum í samskiptum sem við notum hverju sinni, s.s. heimasíðu, tölvupósti, facebook ofl.  
 
3.1.5. Formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna Formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna ber ábyrgð allri fræðslu og viðburðum fyrir félagsmenn sem tengist sjúkraflutningum og utanspítalaþjónustu. Hann situr í fagráði Sjúkraflutningaskólans og fagráði sjúkraflutninga. Hann sýnir frumkvæði að uppfæra námskrá hans. Hann ber ábyrgð á samskiptum við alþjóðasamtök sjúkraflutningamanna og fylgist með þróun og nýsköpun í greininni og kemur á framfæri við Sjúkraflutningaskóla Íslands og rekstraraðilar sjúkraflutninga. Formaður leggur fram tillögur að verkefnum/ráðstefnu á Íslandi og þátttöku LSS í erlendum námskeiðum og viðburðum. Heldur utan um málefni utanspítalaþjónustu á Íslandi og faglegan aðbúnað sjúkraflutningamanna. Ber ábyrgð á að móta stefnu um vettvangsliða fyrir næstu kjarasamninga. Móta stefnu með félagastuðningi og sálgæslu félagsmanna.  
 
3.1.6. Formaður fagdeildar slökkviliðsmanna Formaður fagdeildar slökkviliðsmanna ber ábyrgð allri fræðslu og viðburðum fyrir félagsmenn sem tengist brunavörnum. Hann ber ábyrgð á samskiptum við alþjóðasamtök slökkviliðsmanna og fylgist með þróun og nýsköpun í greininni og kemur á framfæri við Brunamálaskóla Íslands og slökkviliðsstjóra landsins. Formaður ber ábyrgð á samskiptum við fulltrúa LSS í fagráði Brunamálaskólans. Formaður leggur fram tillögur að verkefnum/ráðstefnu á Íslandi og þátttöku LSS í erlendum námskeiðum og viðburðum. Ber ábyrgð á Eldvarnarvikunni, fylgist með málefnum Eldvarnarbandalagsins, heldur utan um faglegan aðbúnað slökkviliðsmanna og tengiliður við 112 daginn.  
 
3.1.7. Meðstjórnandi (kemur í stað formanns fagdeildar stjórnenda)
Nýtt í stjórn LSS og hefur stjórn LSS ekki skilgreint hlutverk hans.
  
3.1.8. Varamaður stjórnar LSS Situr stjórnarfundi í fjarveru stjórnarmanns sem nefnir eru hér að ofan. Þeir skulu boðaðir um leið og liggur fyrir að stjórnarmaður getur ekki mætt á fund. Þeir fá fundarboð, fundargerðir og önnur gögn sem stjórnarmenn fá þannig að þeir séu alltaf upplýstir um gang mála. 
 
Fylgiskjal 2 – Upplýsingar fyrir frambjóðendur  
 
Upplýsingar fyrir frambjóðendur  
 
Uppstillingarnefnd vill koma eftirfarandi á framfæri við frambjóðendur:  
Frambjóðendur sem bjóða sig fram munu hafa jafnan aðgang að fulltrúum LSS.  
Guðmundur Ásgeirsson, starfsmaður skrifstofu LSS, mun halda utan um framboð til embætta og taka við skilaboðum sem frambjóðendur vilja koma á framfæri á netfanginu gudmundura@lsos.is 
Frambjóðendur eru beðnir um að skila inn ferilskrá til að kynna sig og sína sýn á starfssemi LSS. Það er sent út fjórum dögum eftir að framboðsfrestur rennur út til fulltrúa LSS.  
Frambjóðendur fá símaskrá fulltrúa þannig að þeir hafi jafnan aðgang að þeim öllum.  
LSS setur upplýsingar um frambjóðendur á heimasíðu LSS fjórum dögum eftir að framboðsfrestur rennur út og setur link inn á fagdeildar síðurnar á facebook.  
LSS býður frambjóðendum að kynna sig á þinginu og sín málefni (3 mín á mann). Sérstaklega þar sem er mótframboð fyrir kosningar.  
Kostnaður vegna frambjóðenda sem eru í kjöri er ekki greiddur. (Heimsóknir, matur, akstur á framboðsfundi ofl.)  
Í meðfylgjandi skjali má finna starfslýsingar stjórnar fyrir þá frambjóðendur sem vilja bjóða sig fram til stjórnar LSS.  
 
Með fyrirfram þökk,  
 
Uppstillingarnefnd. 

 

Lestu líka

14.2.2026

Tilkynning frá uppstillingarnefnd LSS vegna 21. aðalþings LSS 2026 

10.2.2026

112 dagurinn

3.2.2026

Breyting á stjórn LSS