Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

3.2.2026

Breyting á stjórn LSS

Kæru félagsmenn LSS

Undanfarin tæp 6 ár hef ég notið þess heiðurs að starfa í stjórn LSS sem varaformaður og svo formaður. Á þessum tíma höfum við áorkar miklu og komið á töluverðum breytingum á starfi LSS þó svo að alltaf finnist einhverjir hnökrar annars lagið. Starf í stjórn LSS er alltaf unnið samhliða aðalstarfi og því munu breytingar á stjórn LSS alltaf eiga sér stað. Ég hef tekið að mér nýjar áskoranir hjá mínum vinnuveitanda SHS og mun því láta af störfum sem formaður LSS þann 1. mars næst komandi og býð mig því ekki fram til formans LSS á 21. þingi félagsins sem fer fram 10.-12. apríl næstkomandi. Fram að þingi mun því Sigurjón Bergsson varaformaður LSS taka við keflinu. Ég mun þó áfram vera félagsmaður í LSS og taka að mér einhverja vinnu þó ég sé ekki í forsvari fyrir félagið og sími, tölvupóstur og messanger alltaf virkt.

Um leið og ég þakka fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt undanfarin ár vil ég hvetja þá félagsmenn sem hafa áhuga á að starfa fyrir félagið til að leggjast undir felld og skoða hvort kjara- og réttindamál sé eitthvað sem henti þeim en uppstillinganefnd mun á næstu dögum auglýsa eftir framboðum til stjórnar LSS.

 

Bkv.

Bjarni Ingimarsson

 

 

Lestu líka

3.2.2026

Breyting á stjórn LSS

30.1.2026

Fræðslufundur með Dr. Ricardo Weewer

22.1.2026

Ný þjónusta fyrir fólk á vinnumarkaði sem upplifir erfiðleika og minni vinnugetu – Kynntu þér forvarnaþjónustu VIRK!