Skilagreinar
Launagreiðenda ber að senda skilagreinar með iðgjöldum mánaðarlega fyrir hvern launþega. Mikilvægt er að skilagreinar séu merktar númeri LSS, tímabil sé skilgreint, sjóðir séu sundurliðaðir og rétt merktir og að greiðslur og skilagreinar stemmi.
Númer LSS stéttarfélags er: 986
Nánari upplýsingar
Björg Geirsdóttir
525-8317
bjorg@bsrb.is
Skilagreinum má skila á eftirfarandi hátt:
- Í gegnum vefsíðuna Skilagrein.is.
- Skilagreinar á SAL formi (textaskrár) sendast á netfangið skbibs@bsrb.is
- Til að geta sent út rafrænar skilagreinar á XML formi þarf að setja eftirfarandi slóð inn í launabókhaldið:
https://globalrest.dk.is/bsrb/FundPayments
Samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), ber sveitarfélögum að greiða í eftirtalda sjóði: