1.6.2022
Íslandsmót viðbragðsaðila 2022
Íslandsmót viðbragðsaðila verður haldið í fyrsta sinn laugardaginn 27.ágúst. Mótið fer fram á höfuðborgarsvæðinu og er opið fyrir alla viðbragðsaðila á landinu sem starfa við slökkvilið, landhelgisgæslu, lögreglu, sjúkraflutninga og við neyðarlínuna.
Keppnisgreinar og nánari fyrirkomulag verður gefið út þegar nær dregur. Meðal keppnisgreina verður hlaup, kraftlyftingar, pílukast, slökkviliðskeppni og fótboltamót. Matur og fögnuður að móti loknu.
Takið daginn og kvöldið frá.