 |
| Sigurlaug dregur út vinningshafa. | Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 13:15 Dregið í Eldvarnagetraun LSS Í nóvember var árlegt Eldvarnaátak LSS og slökkviliðanna. Þá voru allir 3. bekkir grunnskólanna heimsóttir og fræddir em eld og eldvarnir á heimilum. Börnin svöruðu síðan getraun og var dregið úr réttum lausnum í dag. Viðurkenningar til barna á höfuðborgarsvæðinu verða afhentar á 1-1-2 deginum þann 11. febrúar í Smáralindinni. Slökkviliðsstjórar munu heimsækja vinningshafa á landsbyggðinni. Vinningshafa má sjá með því að smella á meira. Meira |
 |
| Garðar, Bjarni Kr og Borgar ábúðarfullir í Borgarnesi | Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 12:54 Laganefnd LSS að störfum Á síðasta ársþingi var samþykkt að stofna nefnd til að fara yfir lög LSS. Nefndin er skipuð þeim Garðari Svanssyni, Borgari Valgeirssyni og Bjarna Kr. Þorsteinssyni. Starfið er komið á fullt og er stefnt á að tillögur liggji fyrir mánuði fyrir ársþingið. Ábendingar frá félagsmönnum vel þegnar. Meira |
 |
| Einar Óli Fossdal | Fréttir | 02. febrúar 2012 - kl. 09:41 Lifir fyrir að hjálpa fólki Feykir 12. janúar, viðtal Berglind Þorsteinsdóttir Lifir fyrir að hjálpa fólki
viðtal Berglind Þorsteinsdóttir
Einar Óli Fossdal var útnefndur maður ársins á Norðurlandi vestra af lesendum Feykis. Einari Óla hefur verið lýst sem hvunndagshetju sem tekur annarra hag umfram sinn eigin og lætur sér aðra varða, hvort sem það er með aðstoð við fólk sem er í nauðum statt eða skipta um peru hjá þeim sem megna það ekki sjálfir.
Af því tilefni leit Blaðamaður Feykis við á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi til að færa manni ársins blómvönd og náði stuttu spjalli við hann á milli þeirra fjölbreyttra verka sem ... Meira |
Fréttir | 31. janúar 2012 - kl. 16:37 Orlofshús LSS um Páska Munaðarnes
Páskaleiga 04. apríl – 11. apríl 2012.
Umsóknarfrestur: til og með 15. febrúar n.k.
Félagsmenn sendi inn umsókn á netfang, www.lsos@lsos.is .
Ath. taka fram hvort sótt er um Munaðarnes, Akureyri eða Brautarholt og í athugasemd að um páskaleigu sé að ræða.
Stjórn Orlofsheimilasjóðs LSS
Meira |
Fréttir | 20. janúar 2012 - kl. 13:41 Starfsmatið Vinnu við Starfsmatið er ekki lokið og því mun ekki verða greitt samkvæmt því um næstu mánaðarmót. Meira |
Fréttir | 06. janúar 2012 - kl. 13:27 Sjúkraflutningamenn á Fésbókinni fagdeild.sjukraflutningamanna@groups.facebook.com Fagdeildar sjúkraflutningamanna innan LSS hafa stofnað vefsíðu á Facebook ; fagdeild.sjukraflutningamanna@groups.facebook.com Þetta er sameiginlegur vettvangur fyrir sjúkraflutningamenn LSS til skoðanaskipta og frétta. Þar sem vinna við endurskipulag sjúkraflutninga er í gangi er nauðsynlegt að sem flestir geti komið sínum skoðunum á framfæri sem og með einhver málefni sem heyrt gætu undir fagráð sjúkraflutninga. Meira |
Fréttir | 04. janúar 2012 - kl. 15:43 Reglugerð um öryggismál á flugvöllum Þann 30. desember s.l. tók gildi ný reglugerð um öryggismál á flugvöllum. Þar eru gerðar ýmsar breytingar á fyrri reglugerð nr. 464/2007. Reglugerðina má ... Meira |
Fréttir | 21. desember 2011 - kl. 11:55 Skrifstofan er lokuð 30.12 - 2.01. 2012 Hægt er að ná í framkvæmdastjórann í síma 892-2635. Meira |
Fréttir | 19. desember 2011 - kl. 09:48 Nýr kjarasamningur fyrir sjúkraflutningamenn Atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning LSS fyrir sjúkraflutningamenn er lokið.
Atkvæði greiddu 100%
Já sögðu 87%
Nei sögðu 13%
Samningurinn telst því samþykktur með 87% atkvæða.
Samkvæmt landslögum þá geta einungis þeir sem eru í föstu starfshlutfalli greitt athvæði.
Hægt er að skoða kjarasamninginn á síðunni hér til vinstri.
Meira |
Fréttir | 09. desember 2011 - kl. 12:29 Dómur í uppsagnarmáli frétt af vef BSRB Í dag féll dómur Hæstaréttar í máli félagsmanns BSRB gegn Isavia ohf. Hæstiréttur snéri niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness frá 9. febrúar 2011. Dómurinn er fordæmisgefandi og hefur mikla þýðingu fyrir félagsmenn bandalagsins varðandi réttarstöðu þeirra við aðilaskipti að fyrirtækjum.
Málavextir voru þeir að félagsmaður BSRB, G, starfaði .... Meira |
 |
| Frá undirskrift | Fréttir | 08. desember 2011 - kl. 12:25 Nýr kjarasamningur fyrir sjúkraflutningamenn LSS og samninganefnd Fjármálaráðuneytisins undirrituðu nú í hádeginu nýjan kjarasamning fyrir sjúkraflutningamenn í aðalstarfi og hlutastarfi. Samningurinn fer nú i kynningu til félagsmanna áður en gengið verður til atkvæðagreiðslu. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar. Framundan er vinna við gerð stofnanasamninga. Meira |
Fréttir | 06. desember 2011 - kl. 11:49 Samningaviðræður við ríkið vegna sjúkraflutningamanna Góður gangur var í viðræðunum í gær (05.12). Stefnt er að undirritun 8. desember. Meira |